Uber tilgangslaust
Mætti í vinnuna í alveg spólandi fjöri og ætlaði að taka daginn með trompi, en ó nei, fyrirtækið fullt af fólki en engin verkefni. Mætti verkstjóranum og spurði hvað ég ætti að gera og hann sagði bara "bíddu aðeins", svo ég beið og beið og beið, og svo loksins klukkan hálf níu, ég mætti hálf átta, þá sagð´ann, "ég er að pæla í að hleypa þér út"
Hleypa mér út??? Það var svoleiðis mígandi rigning. En jæja, ég gallaði mig upp í regngallann og fékk mér poka í hönd og rölti útfyrir og tíndi allt rusl sem ég fann í pokkann. Solla fékk líka að hlaup út en að klippa runnann og þegar ég var búin að tína upp afklippurnar þá var klukkan orðin tíu mínútur yfir tíu, ójá þetta var ekki lengi gert, og það með hálftíma kaffipásu og vel það. Nú þá var hjólað í verkstjórann aftur sem dæsti bara, lagaði derhúfuna og sagði; "Þú verður bara að finna þér eitthvað að gera"
Haa, og þar sem að það var nákvæmlega ekkert annað að gera, nú þá stakk ég bara af um hálf tólf og lét svo sjá mig annað slagið eftir hádegið og stimplaði mig svo bara út klukkan þrjú,,,, múhahahahahaha (draugahlátur dauðans).
Reyndar var ég að gera soldið hérna heima sem krafðist þess að ég færi í vinnuna og "reddaði" ýmsum hlutum, en það er allt annað mál........
Jæja það er best að fara að horfa á fimmtugan stressaðan kall á tónleikum, æi já hann er soldið stressaður svona í fyrsta lagi finnst mér, og ef þið eruð að velta því fyrir ykkur þá er ég að tala um Bubbann, hann kæmist ekki langt í Idolinu með þessari frammistöðu, en vonandi batnar þetta hjá kallinum.
Drekinn out
Draumar
Nú vantar mig hana ömmu mína alveg sárlega því hún var snillingur í að ráða drauma, nokkrum sinnum sagði ég henni ruglingslega og hálfskringilega drauma og svörin stóðu ekki á sér. Annað hvort fékk ég að heyra að þeir merktu ekki neitt eða að það sem hún sagði rættist............... ekki að skrökva þessu.
En þar sem amma er upptekin við að ráða drauma einhversstaðar annarsstaðar þá ætlaði ég að prófa annan miðil, sem sagt netmiðil og var svona að prófa mig áfram án þess að vita hvert ég ætti að fara, og í bjartsýniskasti sló ég inn "draumar.is" og viti menn, þarna opnaðist síða og á henni stendur:
Þessi vefur er helgaður draumum og draumaráðningum.
Vefurinn er efnislega í vinnslu sem stendur.
Formleg opnun vefjarins er áætluð skömmu eftir páska ...
Ha, ekki var nú mikið að græða á þessu, með þessu áframhaldi þess dugnaðarforks sem heldur þessari síðu opinni þá held ég að ég geti allt eins beðið eftir því að hitta ömmu bara sjálf og spyrja hana ráða. Nei, nei bara smá pæling. Kannski er þessi orð "skömmu eftir" bara eitthvað sem síðuhöfundur slær um sig án þess að vita merkingu þess.
Nei nú er ég farin að pirra mig á einhverju sem ég hef ekki hundsvit á, kannski er meintur síðumótari bara nú þegar að spjalla við hana ömmu mína sjálfur um draumaráðningar svo að hann getur ekkert gert í því að "skömmu eftir" verður að "aldrei"
Kannski ég finni bara einhverja skruddu um þessi mál og reyni að ráða fram úr þessu með því móti, eða bara bíði og sjái til hvort að það gerist ekki eitthvað í kringum mig svo ég geti bent fingrinum á það og sagt: Aha!!! mig dreymdi einmitt að þetta myndi gerast........
Drekinn out![]()
Kökuslátrun
Jábbs, ég er búin að gleypa á mig öll kíló sem ég hef misst (haft mjög mikið fyrir að hlaupa, spinna, lyfta af mér) og öll kíló sem ég hef puðast við að gleypa á mig yfir ævina (hvað er ég að tala um, þau sogast á mig ef ég svo mikið sem hugsa um að hugsa um mat).
Það var nebblega afmælisveisla hjá honum Stefáni semer orðinn fjögrára í dag, svaka stór, og hún móðir hans og faðir reyndar líka eru þvílíkir listakökugerðarmenn að það var svakalega erfitt að hætta að éta, þurfti hreinlega að slíta mig af kökudiskunum og henda mér (rúlla mér) út. 
Nú eru ferðamenn farnir að streyma inn um bréfalúgu Þingeyrar í ágætis hollum hvort sem þeir eru á húsbílum, reiðhjólum eða það sem mér finnst fyndnast, puttanum
Hvað er eiginlega að þessu liði, er það að spara pening með þessu? já sennilega, nýtur það útsýnisins betur ? ég efa það, þegar það er nánast haglél og öskrandi rok þá setur þetta blessaða puttalingalið undir sig hausinn eins og sofandi fuglar og sér ekki rass...nema kannski á þessum á undan, skrönglast svo áfram fet fyrir fet og það er orðið svo blautt ´, skítugt og illa lyktandi að það dettur ekki nokkrum lifandi manni að hleypa því upp í nýja leðurklædda fjallajeppann nema ef vera skyldi afdala bóndadurgi sem flytur kindurnar sínar aftur í pickuppnum sínum á fjöll og mætir svo til kirkju með fjölskylduna á sama bílnum. Er ekki að grínast, sá þetta með eigin augum, með hvaða öðrum augum ætti ég svo sem að sjá þetta? hvað er eiginlega að ykkur.......hu
Mér er svo sem sama að það sé kominn sá tími fyrir þessa farfugla, engin fuglaflensuógn frá þessum fuglum, í mesta lagi uppgangs-og niðurgangspestir sem skjóta kannski upp kollinum (eða aftruendanum), en það sem fer í pirrurnar á mér er að tjaldstæðið er næstum því inn í íþróttahúsinu, og þar sem að við erum í spinning mjög snemma á morgnana með tilheyrandi tónlist og hávaða, því það verður að vera hávaði, ekki nennir maður að heyra í næsta manni hvása og mása við hliðina á manni svo ég tali nú ekki um að maður kærir sig ekkert um að hinn heyri í mér, og mig langar ekkert að vita hver prumpaði þessari skítalykt..........nei nei bara grín.
Af hverju þetta fer í pirrurnar á mér er að þetta lið kemur æðandi inn í salinn á skítugum skónum og með stýrurnar í augunum og æpir á mann að lækka í tónlistinni. Ég borga fyrir að vera þarna alveg eins og þau, mikið meiri pening og þar fyrir utan þá á ég heima hérna og hætti ekkert að gera það sem ég geri fyrir eitthvað lið sem á nóg af peningum (trailortrashið) eða hinum sem ferðast á ölmusu (fingerpokingliðið).
FÆRUM HELV.... TJALDSTÆÐIÐ ÚT ÚR ÍÞRÓTTAHÚSINU!!!
Skratti hef ég nú mikið að segja í dag, en ég ætla að leggjast á meltuna, og melta bæði kökurnar og velta því líka fyrir mér hvert hægt sé að færa tjaldstæðið, það er takmark mitt í lífinu núna á þessari stundu.
Drekinn out
Omg
Það er meira hvað ég get látið þessa blessuðu vinnu fara í taugarnar á mér.........
Málið er að það er endalaust verið að breyta fyrirkomulagi staðarins og endalaust af nýju drasli hrúgað inn í sama rými, og það sem meira er að það virkar ekki rass..........
Það má svo enginn svo mikið sem anda á mig þá vaxa á mig horn og hali, svo mikill pirringur er í gangi. Sé mikið eftir því að hafa ekki bara stungið af í bæinn.
Nóg komið af sorg og sút því mar er kominn heim og sestur með græjuna í sófann og svo á að reyna að glápa á Grey´s Anatomy, en ég get það ekki á meðan ég er að strá salti yfir ykkur.
Gorms out
Aðeins fleiri myndir af guttonum!!!
MISSISIPPI
A bus stops and two Italian men get on. They sit down and engage in an animated conversation. The lady sitting behind them ignores them at first, but her attention is galvanized when she hears one of the men say the following:
"Emma come first. Den I come. Den two asses come together. I come once-a-more. Two asses, they come together again. I come again and pee twice. Then I come one lasta time."
"You foul-mouthed sex obsessed swine," retorted the lady indignantly. "In this country....we don't speak aloud in pubic places about our sex lives.........
"Hey, coola down lady," said the man. "Who talkin' abouta sexa? I'm a justa tellin' my frienda how to spella 'Mississippi'."
Fékk þennan sendan frá Möggu frænku og varð að láta hann fljóta með
Glennið upp augun
Hallelújaaaaaaa............
Málið er að ég fór á Ísó í gær og lét verða af því að láta klippa á mér lubbann, og þar sem að toppstykkið lítur svona sæmilega út núna þá finnst mér ég vera frelsuð af lubbapúkanum, sé til að mynda út úr augum, engin loðin motta að skyggja á útsýnið þegar það er eitthvað annað en fiskur. jeje
Svo var ég ekkert að flýta mér heim yfir Gemluna, ónei fékk gistingu og drattaðist heim rétt um hádegið, en fékk ekki að stoppa neitt lengi í heiðardalnum þar sem að ég þurfti að bruna aftur á Ísó á sjúkrabílnum með sjúkling og svo þegar ég kom loksins í innkeyrsluna á stóra búgarðinum mínum og fór að skipa þjónustuliðinu fyrir verkum, klippa runnana-slá grasið-þvo gluggana-bóna bílinn-skúra-þvo þvottinn og allt annað sem stór búgarður þarf að láta gera dags daglega, þá var ég svo gjörsamlega búin á því, svo að það er allt algjörlega ógert.
Omg. Beioncei (hvernig sem það er nú skrifað) er í einhverju myndbandi í sjónvarpinu og ég get svarið að grey´ stelpan er með parkinson í afturendanum. Stelpukindin, eða ætti maður að segja rollan hún er með svo krullað hár, já stelpurollan er þarna að reyna að syngja og rassgatið á henni hristist og nötrar, hoppar og skoppar svo að mér þætti það ekkert undarlegt að það skoppaði bara í gólfið á næstu sekúndum
Ok, ég skal hætta að dissa Bouncie, það er ljótt að gera grín að fólki sem er veeiiiikktttt.
Og talandi um rollur, þær eru náttlega komnar á ról eins og leiðindafól með svakaleg tól, nei nei nú er ruglið komið í mig, var nebblega að kjafta við hann Rilla og hann hefur smitað mig af ruglinu sem einkennir hann, frábær náungi þar á ferð.
Já og þið sem eruð að bíða eftir að ég gangi til liðs við msn-inga, verðið bara að bíða svolítið þolinmóð eftir því, er ekki alveg tilbúin að taka svona stórt skref í átt að siðmenningunni sem einkennir svooooleiðis fólk, múhahaha
Nú skal hætta að pikka því klukkan tikkar og talvan í hausnum á mér klikkar, já ég veit ég er glötuð............en ekki hötuð....ok er hætt
gorms
Klippi klipp
Jamms nú líkar mér lífið maður, komin í ný föt (þá meina ég hér á blogginu) og útlitið bara bjart framundan![]()
Eitthvað vantar nú samt upp á að harðlífið í hausnum á mér fari að lagast, þar er útlitið heldur betur eins og í svartholi undanfarna daga. Bara svart og fullt af engu, nema hvað að ég hef aldrei áður heyrt af svoleiðis harðlífi, þau eru yfirleitt stútfull, hehehe![]()
Vá er ekki gaman að lesa um svona hluti á nýju bloggi lífsins....................
það verður bara meira næst, ég loooooooofa, og það verður almennilegt skal ég segja ykkur(hope so)
gormurinn over and out![]()
ELLÚÚÚúúúú......
Er bara að bíða eftir að fara í vinnu svo ég ákvað að prófa að fá mér nýtt blogg og gá hvernig þetta grey virkar.
Until later
gorms out
