Ég er ekki hægt !!! annar hluti
Er eiginlega frekar hratt ef út í það er farið.
Vaknaði í morgun ( gott með mig, finnst ykkur ekki? ) íbúðin var ein rúst, neh bara svona eins og venjulega, skipuleg óreiða ekkert annað, og eftir að hafa mokað úr augunum og klætt mig í illa þefjandi vinnugallann lá leiðin upp í eldhús að næra belginn.
Undanfarna morgna hef ég dundað mér við að búa til morgunboost, sem samanstendur af skyri og ýmsum ávöxtum þeyttum samanvið og náttlega ísmolum líka, nema hvað að í morgun var hugurinn eitthvað á reiki ( aldrei slíku vant ) og var þess vegna ekkert alveg að fylgjast með sjálfri mér, eða hvað ég var að gera.
Þar sem ég er á leiðinni að ná í ísmola í frystihólfið, sem staðsett er neðan til á ísskápnum, þá beygi ég mig niður til að opna hurðina á frystihólfinu og gríp um þartilgert handfang og rykki í.
*****Bong *****
Það vildi ekki betur til en svo að í stað þess að taka í handfangið á frystihólfinu, þá tekur mín neðarlega í handfangið sem notað er til að opna sjálfa ísskápshurðina, og þar sem ég er svona nokkurnvegin í 90° ( unum ) með skallann alveg í þessu líka dauðafæri við hurðina og rassinn út í loftið, að auðvitað small hurðin beint á toppstykkið, og þið getið rétt ímyndað ykkur bergmálið sem glumdi um drekahellinn.
Nema hvað að ég settist þarna á eldhússtólinn og grét, úr hlátri auðvitað, því þetta var BARA fyndið skal ég segja ykkur, og var ég lengi að jafna mig, er reyndar búin að minna mig á þetta í allan dag í vinnunni og enginn veit af hverju ég er að hlægja.
Ógisslega gaman, finnst ykkur ekki?
Dreki hinn óheppni Dýrfjörð OUT
Enginn vals!!!
Einn af vistmönnum elliheimilisins Tjarnar hafði brugðið undir sig betri fætinum, skellt sér í sparigallann og mætt á borðhaldið þar sem hún skemmti sér á allan hátt við mat og drukk. Tekið skal fram að konan sú hélt upp á níræðis áfangann á síðasta ári, en það stoppar sko ekki þessa hressu konu að smeygja sér í dansskóna.
Nú, sem fyrr lét hún vel af borðhaldi en hafði allt aðra sögu að segja af dansleiknum. Þarna sat hún við borðið sitt, vel við skál og beið þolinmóð eftir að heyra gamalt og gott lag að dansa við en eins og hún orðaði það við hann afa minn, þá kom bara garg frá þessum vitleysingum á sviðinu. Ekki einn einasti vals var spilaður til að dansa við allt kvöldið, en fólkið á dansgólfinu hristi og skók handleggjunum framan í andlitið á hvort öðru eins og brjálæðingar við þetta endalausa garg.
Hún gafst upp klukkan tvö um nóttina og fór heim.
Þetta gefur góða mynd um breitta tíma og fær mann til að hugsa um það hvernig þetta verður þegar maður sjálfur, á svipuðum aldri, ætlar að gera sér glaðan dag, skreppur af elliheimilinu á ball og bíður eftir að geta hrist handleggina framan í næsta mann. Þá er bara spurningin þessi. ,, Hvernig tónlist verður spiluð þá " ', þ.e.a.s. ef maður lifir svo lengi.
Dreki Dýrfjörð OUT
Stjörnuspá
Þú sérð þig í einhverjum öðrum raunveruleika, með annað starf og í öðrum félagslegum aðstæðum. Það er gaman að heimsækja hefði-geta-orðið-land, en ekki að búa þar.
Og svo að veðrinu gott fólk. Það er óhætt að segja að það sé búið að vera skítaveður undanfarna daga, það snjóar og snjóar, mér til mikillar ánægju, ég elska snjóinn, en þá kemur hellidemba og skemmir allt. Endalaus hálka og leiðindi, en þá snjóar aftur og í kjölfarið kemur heljarinnar rok sem auðvitað skefur öllu í skafla á kolvitlausum stöðum. Alltaf skal skafa í gönguleiðina sem maður er búinn að moka og moka og moka og moka og moka, endalaust uppúr svo ég tali nú ekki um þegar maður þarf að vakna klukkutíma fyrr á morgnana til að moka bílinn út úr innkeyrslunni.
Vá hvað þetta snérist upp í kvartpistil allt í einu, nú ætla ég að skamma sjálfa mig og benda á að þetta er bara ágætis líkamsrækt að moka allan þennan snjó, svo hættessu væli.
Dreki Dýrfjörð OUT
Ég er ekki hægt !!! LoL
Ekki það nei ... en það hef ég, og eins og gefur að skilja var það alveg hrikalega fyndið eftir á.
Kom heim áðan eftir laaangan og errrfiðan vinnudag ( eða þannig ) og skellti mér undir heita bununa til að láta erfiði dagsins skolast út á hafsauga. Eftir að hafa dvalið dágóða stund í klefanum, heyrist allt í einu þvílíkur hávaði að mér leist nú ekkert á blikuna. Í fyrstu hélt ég að hljóðið kæmi frá blöndunartækjunum og skrúfaði því fyrir, en við það magnaðist hljóðið bara, brrrrrrrrzzzzzzzrzzzzzzrzrzrzrrrrrr.
Ímyndið ykkur hljóð eins og þegar síminn hringir og er staddur á glerborði með titrarann á, nema svona fimmfallt hærra en það og... mar stendur þarna blautur og berró og veit ekki hvur andskotinn er í gangi með þetta klikkaða hljóð gargandi í eyrunum.
Ég fann ástæðuna fyrir þessum blessuðu óhljóðum mjög fljótlega, eða í þann mund er ég stökk út úr sturtuklefanum, og ég verð að segja ykkur, að þetta er það allra fáránlegasta sem ég hef lent í, eins og ég sagði áðan, ógó fyndið.
Málið var, að ég var nýbúin með forvarnarstarf undir höndunum, eða raka áður en frumskógur myndast, og við það nota ég svona bleika Venus Vibrance raksköfu. Er nú ekki vön að nota víbringinn á þessu apparati, en að þessu sinni hef ég greinilega ýtt á hnappinn áður en ég byrjaði, ja eða á eftir, man bara alls ekki eftir því, þar sem ég er með glerglas undir raksköfuna í sturtuhillunni sem er úr járni, þá stakk ég endanum handfangsmegin ofan í glasið og hinn endinn með rakblöðunum ( sem titrar ) lá utan í sturtuklefann sem er úr einhvursslags plastefni, og þar sem ég mundi ekki eftir að hafa kveikt á apparatinu þá var ég ekkert að slökkva og við allt þetta samansull af gleri, járni plasti og titrandi raksköfu mynduðust þessi óskaplegu hljóð.
Þetta er kannski ekkert svo fyndið við lesningu, en þarna á þessum tímapunkti og að hafa orðið svona líka skelkuð yfir einhverju hljóði er náttlega bara þvílíkt hillaríus að ég mátti til með að deila þessari fáránlegu reynslusögu með ykkur.
Hafið það gott elskurnar mínar og munið...
...slökkvið á draslinu.
Dreki Dýrfjörð OUT
S%#T
Í ljósi þess að maður er að þreifa fyrir sér á atvinnumarkaðnum, að þessu sinni í borg óttans, þá þarf að finna einhverja holu að búa í á meðan og er það ekki skemmtilegt verk get ég sagt ykkur.
Fjöldinn allur af allskonar bústöðum er í boði, sem ætti ekki að vera slæmt nema ef vera skyldi fyrir verðið sem sett er upp. Ein auglýsingin hljóðaði þannig að mig langaði að hringja í viðkomandi hýsanda og lesa yfir honum hneikslan mína á svívirðilegu verði sem hann setti á tíu fermetra herbergi með aðgangi að baði.
Fimmtíu og fimm þúsund á mánuði, þrjá mánuði fyrirfram, takk fyrir takk!. Ekki var upplýst neitt um það hvort hægt væri að elda í þessari holu, því geri ég ráð fyrir því að náunginn sé í skyndibitabransanum og sé með þessum aðgerðum að ýta undir að slíkir staðir séu stundaðir af leigjandanum.
Þetta er ekki allt svona, en ferlega svipað, svo niðurstaðan er sú að ég græði meira á því að hanga hérna í sumar á atvinnuleysisbótum en að fara út í þennan pakkann, en að mínu viti er það ekki valkostur, heldur síðasti kostur af öllu endanlegu.
Næsta nágrenni verður því væntanlega fyrir valinu, en það er þó ekki fastákveðið á þessari stundu, svo örvæntið ekki þið sem viljið hafa mig hjá ykkur og ekki heldur þið sem bíðið í ofvæni eftir að losna við mig, það er nebblega allt inní myndinni á þessari stundu.
Jæja það er vinna í fyrramálið ( á laugardegi) svo það er best að fara að skrúbba í sér geiflurnar, rífa úr sér glyrnurnar ( linsurnar ) og pajama sig upp og skríða í bólið.
Dreki Dýrfjörð OUT
Ái fu#$
Hinsvegar snérist dæmið heldur betur við er ég kom inn úr dyrunum heima hjá mér eftir æfingu. Af hverju? . Jú, þegar ég er að fara skónum þá gerist það. Var í svona gönguskóm, og þeir áttu að vera svona lauslega bundnir, en eitthvað hef ég hert of mikið á og þið vitið hvernig mar fer úr skónum, setur tærnar á vinstri fæti fyrir aftan hælinn á þeim hægri og heldur við á meðan hægri fótur laumast upp úr skónum. Það tókst ekki betur en svo að tærnar misstu gripið og hællinn á skónum þrykktist í sköflunginn á vinstri fæti.
Djöfull var þetta ógeðslega vont, og er ekki að gerast í fyrsta skipti skal ég segja ykkur, en í þetta skiptið kom ógeðsleg kúla á sköflunginn, eiginlega svona blóðkúla eða eitthvað svo ég er búin að sitja í latadreng með frosið grænmeti ( í poka ) ofan á sköflunginum til að fá kúluna til að hjaðna. Hún hefur nú minkað mikið síðan atburðurinn átti sér stað, en það á eftir að verða myndarlegur marblettur til minnis um þennan merka atburð.
Jæja góði minn, nú er ég búin að blogga fyrir þig, ég vil fá komment á 'etta.
Dreki Dýrfjörð OUT
Skrifað stendur
,, Ekki skal kvíða ókomnum degi "
Það er nú bara helvíti erfitt þegar mar kvíður öllu árinu.
Dreki Dýrfjörð OUT
En ég ætla nú ekki að enda þessa færslu svona svakalega drungalega, vonandi reddast málin hjá öllum og það verði allt í gúddí gúddí fíling eftir allar hrakfarirnar sem nota bene hafa ekki ennþá dunið yfir oss, en slá okkur væntanlega jafn mikið út af laginu þegar það gerist og þegar við fengum fréttirnar af vinnustöðvuninni sem vara á í fimm mánuði takk fyrir.
Ég gæti alveg baunað einhverju misviturlegu hérna um hvað mér finnst um þetta allt saman, og ef ég þekki sjálfa mig rétt, þá kemur það væntanlega hérna eftir smá.
Í fyrstu, hrikalegt sjokk bara, ég get ekki sagt annað. Því næst nettur léttir á að þeir hafa lofað því, vonandi ekki upp í ermina á sér, að eftir þessa fimm mánuði, þá hefjist vinnan aftur af fullum krafti. En hve langt nær það? Næstu sjö mánuðina, þá verður aftur stöðvun í fimm mánuði, og væntanlega verður þetta fimm ára prósess takk fyrir.
Þá kemur að stóru spurningunni.
,, Hvurn andskotann á mar að gera ? "
Á maður að láta sig hafa það að draga skankana í fjóra mánuði á atvinnuleysisbótum, sem by the way, duga engan veginn fyrir skuldahalanum sem blaktir aftan úr manni, og taka svo einn mánuð í sumarfrí?
Svar: ÓNEI, ekki séns í helvíti.
Sækja um vinnu í Bónus?
Svar: Neibb, heillar mig lítið sem ekkert, en.... það er þó vinna.
Eða bara einhverja vinnu á Ísó?
Svar: Kemur vel til greina sko.
Selja kofann, flytja í bæinn og lifa þar happylí ever after?
Svar: Mig hefur aldrei langað að búa í bænum, en einstefnan í þessu landi er slík að væntanlega verður það endirinn, ef ekki á þessu ári þá örugglega því næsta.
Þetta eru bara fáeinar hugmyndir sem eru að veltast um í kolli mínum þessa stundina, ætti kannski ekki að angra ykkur með þessu, en hef bara ekkert upplífgandi að segja þessa dagana svo....
Hinsvegar langar mig að segja eitthvað ógeðslega ljótt og fyndið um þessa skrattans ráðamenn landsins, sem eru að fara með allt til fjandans, en ætla að hætta núna.
HaHa, helv... góður.
Tveir gaurar frá Íslandi dóu og vakna upp í helvíti.
Daginn eftir tékkar Djöfullinn sjálfur á þeim og sér að þeir sitja í mestu
makindum í úlpunum sínum, með vettlinga og húfur og orna sér við eldinn.
Djöfullinn spyr þá hvað þeir séu eiginlega að gera? Er ekki nógu heitt í
helvíti fyrir ykkur ?
Gaurarnir svara, "Sko, þú veist, við erum frá Íslandi, landi snjós,íss og
kulda. Við erum bara ánægðir að fá smá yl í kroppinn."
Djöfullinn ákveður að þeir séu nú ekki að þjást nóg svo hann skrúfar upp
hitann.
Morguninn eftir kíkir hann aftur á gaurana tvo og þarna sitja þeir ennþá í
úlpum með húfurnar og vettlingana ennþá á. Það er nú ferlega heitt hérna,
finnst ykkur það ekki?
Aftur svara gaurarnir því til að þeir komi jú frá Íslandi, landi snjóa, íss
og kulda, við erum bara fegnir að fá smá yl í kroppinn !
Það fór nú að fjúka nett í Kölska og hann ákveður að jafna örlítið um þessa
tvo gaura. Hann fer og setur hitann á "Fáránlegt". Fólk fer að veina og væla
út um allt helvíti. Hann fer svo og kíkir á gaurana tvo frá Íslandi og sér
að þeir eru komnir á skyrtuna með upprúllaðar ermar og eru að grilla pylsur
og þamba bjór.
Djöfsi verður steinhissa " Allir hérna inni þjást og veina, en þið virðist
bara njóta ykkar?"
Já sko, það er svo hrikalega sjaldan að við fáum svona gott veður heima á
Íslandi, að við urðum bara að grípa tækifærið og grilla aðeins og súpa á
öli.
Alveg óður af bræði, strunsar Djöfsi í burtu og hugsar málið. Að lokum kemst
hann að þeirri niðurstöðu að þessir gaurar hafi verið að krókna allt sitt
auma líf á Íslandi, þess vegna eru þeir svona kátir yfir öllum hitanum.
Djöfullinn ákveður að skrúfa fyrir allan hitann í öllu Helvíti.
Daginn eftir er orðið ískalt í Helvíti og héla og grýlukerti allsstaðar.
Fólki orðið svo kalt að það gat varla gert neitt annað en veinað og aumkað
sér yfir kuldanum. Tannaglamur yfirgnæði samt að mestu veinin. Djöfullinn
glotti með sjálfum sér og fór að kíkja á gaurana frá Íslandi.
Þar eru þeir komnir í úlpuna, húfuna og með vettlingana á sér...en Djöfsa
til mikillar furðu, eru þeir að hoppa og öskra Ole ole af mikilli gleði !?
Ég skil ekki, sagði Djöfsi, ég skrúfaði hitann upp úr öllu valdi og þið
voruð bara ánægðir og núna er bullandi frost hérna og þið bara öskrandi af
gleði?? Hvað í fjárnaum er að ykkur tveim?
Íslendingarnir líta á Djöfsa með spurn í augum, " Ha, veistu það ekki? Ef
það frýs í helvíti, þýðir það bara að Íslendingar hafa unnið Dani loksins á
Parken!"
Bara svona í tilefni þess að handboltafárið er á næsta leiti.
Dreki Dýrfjörð OUT
Á VOG!!!
Skrapp í heimsókn til Riller í dag, sem er alveg efni í heila bók ef út í það er farið, en ástæðan fyrir innlitinu var sú að hann þurfti að koma til mín DVD diskum í aðgerð sem nefnist copering, eða á Rilla máli, teikning.
Hann var nebblega að fjárfesta í tónleikadiskum sem innihalda gamlar og góðar hljómsveitir sem eru eins og gefur að skilja í miklu uppáhaldi hjá Rillanum og til að innihald þessara blessaðra diska lifi nú aðeins lengur en eitt til tvö skröll, þá eru þeir teiknaðir á varadisk, og það skal tekið fram hér að það er einungis gert í forvarnarstarfi en ekki til fjöldaframleiðslu, því það er jú ólöglegt eins og þið vitið.
Sögustund hófst eftir korters viðveru svo ég ílengdist AÐEINS á sófanum, eða rétt rúmar sex klukkustundir, og eins og venjulega hljómuðu gamlir og góðir slagarar úr risahátölurum sem staðsettir eru í hornum stofunnar, hangandi í þykkum keðjum neðan úr loftinu.
Þegar leið á kvöldið og fáeinir kaldir höfðu runnið sitt skeið, allt frá tindós í postulín og þaðan guð má vita hvert, stendur Rillarinn allt í einu upp og segir við mig alveg grafalvarlegur;
'Halldóra, ég er að fara á Vog'.
Í gegn um huga minn fóru ekki ótal hugsanir eftir þessa opinberun þar sem ég bjóst frekar við einhverju helvítis rugli úr manninum heldur en hitt, en ég leit á hann frekar íhugul á svip og svaraði eins alvarlega og mér var unt;
'Nú, er það?'.
Og þar sem ég sit og íhuga hvað koma skuli, stígur Rillarinn á baðvog sem er þarna stödd á stofugólfinu, og hreinlega RIFNAR úr hlátri.
Gaurinn staulast því næst fram á gang, alveg í keng vegna eigin fyndni og hverfur inn fyrir dyr sem á er mynd af litlum dreng að spræna í kopp og eftir smástund, eða þann tíma sem tekur að gera það sem þar er gert, þá er ískápshurðin rifin upp og einn kaldur til hrifsaður þaðan að nýju og stefnan tekin á húsbóndastólinn.
Tekur því varla að taka það fram, en hún ég er ennþá, eftir rúma þrjá tíma, að hlægja að þessu uppátæki Riller the Killer.
Dreki Dýrfjörð OUT.
Heljarinnar sprelli sprell
Ég er sko með rífandi attitjút þessa stundina, var nebblega farin að örvænta hérna fyrir jólin vegna dræmrar mætingar hjá sveitungum, en það er víst svoleiðis á stóru flottu líkamsrækrarstöðunum líka, emty as a ??? eitthvað, fann ekki upp á neinu sniðugu.
Góð mæting í þessa fyrstu tvo tíma sem hafa nú runnið sitt skeið, og ennþá meiri sviti hefur líka runnið, ójám, brenna-brenna spikið burt.
Það er líka eins gott því ekki er mikið fyrir vinnunni að fara þessa dagana, ég er að fara heim klukkan hálf tvö upp á hvern einasta dag, það er verið að spara fiskinn sem til er, kvótaskerðingin og allt það þið vitið...
Á von á fullt af harðsperrum hjá mér og öllum hinum líka, annars fer ég í fýlu...nei, þá verð ég bara ennþá harðari við ykkur eskurnar mínar í næsta tíma...sem er á morgun.
Júhú, mikið hlakka ég til, er hreinlega að fara yfir um að vera farin að hreyfa mig aftur eftir jólapásuna.
Síja.
Dreki Dýrfjörð OUT
