Páskafrí
20. apríl 2011 klukkan 20:12
Heil / ll og sæl / ll, þú sem þetta lest ( ef það er þá einhver hérna ennþá ).
Nú brakar aldeilis í kjúkum þess er ritar þar sem fyrrnefnd hefur ekki látið sjá sig hér í hart nær þrjú ár og pikkað er með einum og einari í einu til að ná upp fyrri hraða. Engin loforð eru uppi um að hér verði haldið eitthvað áfram af sama móði og áður, en það verður gert sitt besta til að ná upp fyrra þoli.
Og það sem meira er, lykilorðið inn á síðuna var sem greipt í toppstykkið, því flogið var inn og lent í fyrstu tilraun. Húrra fyrir því!
Nú! Páskafríið er dottið inn og er heldur betur tekið á því, ekki í formi heilsu né ræktar. Nei aldeilis ekki, eina sem á sig er lagt í formi hreifingar er að lyfta einhverju matarkyns upp að vörum sér og þaðan innfyrir þar sem mulningsvélar af Guðs náð ( ennþá sem komið er ) sjá um að ekkert festist nú á leiðinni niður í maga. Tærnar þjóna engum tilgangi þar sem þær eru upp í loft allan daginn og virða fyrir sér þetta himnaríki, engar illþefjandi svartar námur til að vinna baki brotnar í allan daginn. Hlýtur að vera ömurlegt hlutskipti að vera tá!
"Litli" bró er í heimsókn í sveitasælunni með los guttos og þeir halda manni aðeins við efnið, ef ekki væri fyrir þá, þá held ég að það þyrfti að brjóta niður nokkrar dyr til að koma mér út eftir allt þetta gleypidæmi. Kenni þeim "litla" um allan þann mat sem flæðir um borð og eldavél hjá mútter, því hann stígur fæti á verstfirska grund og sú gamla byrjar að baka á fullu og heit máltíð tvisvar á dag, er farin að gruna hvort okkar er "uppáhalds"
Held þetta sé komið gott í bili ... já talandi um bil ... geggjað veður úti, það jólasnjóaði svoleiðis snjókörlum í gærkveldi og sólin skein á Þingeyrina fögru í dag.
sæjónara sæljónin mín ... þartilnæst ;)